Fiskur slapp úr landeldi
Um 150 seiði sluppu að öllum líkindum úr landeldisstöð Háafells á Nauteyri við Ísafjarðardjúp. Frá þessu greinir á vef Matvælastofnunnar. Fram kemur að um óhapp hafi verið að ræða þegar verið var að dæla seiðum á milli húsa. Krani á drenlögn var ekki að fullu lokaður. Fiskur hafði farið um opinn kranann og niður í fjöru.
„Fyrirtækið virkjaði strax viðbragðsáætlun vegna stroks og setti út net. Starfsfólk Háafells náði að tína upp seiði sem voru eftir í drenlögninni og seiði sem sprikluðu í fjöruborðinu. Um 50 seiði náðust að auki í net. Alls náði starfsfólk Háafells 2.560 seiðum
Þrátt fyrir viðbrögð starfsfólks er ekki hægt að útiloka að um 150 seiði muni hafa komist í sjó fram samkvæmt lífmassabókhaldi fyrirtækisins. Seiðin voru um 120g að stærð og sjógönguhæf,” segir á vef MAST.