Veiðar að hefjast á sumargotssíld

Deila:

Veiðum skipa Síldarvinnslunnar á norsk-íslenskri síld er að ljúka en veiðar á íslenskri sumargotssíld eru að hefjast. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar. Þar segir að Barði NK hafi í gær landað 1.170 tonnum af norsk-íslenskri síld. Gert er ráð fyrir að Vilhelm Þorsteinsson komi með síld að landi á mánudag.

„Fyrsti farmurinn af íslenskri sumargotssíld barst til Neskaupstaðar 28. október í fyrra. Auk veiða á íslenskri sumargotssíld munu uppsjávarveiðiskipin sinna kolmunnaveiðum og Beitir NK er á kolmunnamiðunum í Rósagarðinum núna. Börkur NK mun þó halda til Danmerkur þar sem hann fer í slipp,” segir í frétt á vef Síldarvinnslunnar. Þar er rætt við skipstjórann á Barða. “Það var allt eins og best verður á kosið – stutt að fara, mokveiði og blíðuveður. Við fengum aflann í fimm stuttum holum. Það var einungis dregið í einn til tvo tíma og aflinn var á bilinu 180 – 300 tonn. Það var reynt að fá ekki of mikið. Við vorum að veiðum um 30 mílur út af Dalatanga. Það má alveg kalla þetta lúxusveiðar,” segir Theodór Haraldsson.

Deila: