LS vill kaupa 10 þúsund tonn fyrir milljarð

Á aðalfundi LS var samþykkt tillaga frá formönnum fimm svæðisfélaga um tilboð til stjórnvalda, að félagsmenn í LS veiði 10 þúsund tonn af þorski og greiði fyrir það einn milljarð. Aflinn yrði viðbót við heildarafla. Frá þessu er greint á vef Landssambands smábátaeigenda.
Tillagan var svohljóðandi: „Landssamband smábátaeigenda geri stjórnvöldum tilboð um að félagsmenn veiði 10 000 tonn af þorski á fiskveiðiárinu sem hefst 1. september 2025. Fyrir hvert veitt kílógramm greiðast krónur eitthundrað í ríkissjóð.“
Fram kemur að í greinargerð með tillögunni sé til viðbótar greiðslu fyrir þorsk gert ráð fyrir að fjórðungur af aflaverðmæti meðafla renni í ríkissjóð. „Óskað verður eftir að Reiknistofa fiskmarkaða sjái um að halda eftir við uppgjör fjárhæð sem fer til ríkissjóðs, en skylt verður að selja aflann gegnum fiskmarkaði. Veiðar skulu fara fram á þeim tíma sem viðkomandi stundar ekki strandveiðar. Þá verði þátttakendur að afsala sér rétti til að flytja frá sér veiðiheimildir í þorski á viðkomandi fiskveiðiári.”
Á vefnum segir að aðaltilgangur tilboðsins sé að auka tekjur ríkissjóðs af auðlindinni um einn milljarð.
Samhliða væri ávinningur margþættur, t.d.
- Aukið rekstraröryggi kvótalítilla báta.
- Aukinn stuðningur við dreifðar byggðir landsins.
- Aukið vægi umhverfisvænna veiða.

