„Veðurguðirnir okkur mjög hliðhollir”

Deila:

Breki VE og Þórunn Sveinsdóttir, skip Vinnlustöðvarinnar, hafa aldrei verið eins fljót að ljúka hraustralli og þetta árið. Þetta kemur fram á vef Vinnstlustöðvarinnar. Haustrallinu lauk fyrir rúmri viku en auk skipanna tveggja tók Árni Friðriksson, rannsóknaskip Hafró, þátt í rallinu. Í frétt á vef Vinnslustöðvarinnar er rætt við Val Bogason, sjávarvistfræðing sem var leiðangursstjóri á Þórunni Sveinsdóttur.

„Leiðangurinn á Þórunni gekk mjög vel og voru veðurguðirnir okkur mjög hliðhollir og vorum við á mettíma í haustrallinu á grunnslóð, eða í 21 dag. Besti tími til þessa eru 23 dagar. Landaður afli  á Þórunni var tæp 112 tonn sem er næstbesti afli síðustu ára á grunnslóð, það var bara í fyrra sem fékkst betri afli,” segir Valur í samtali við vef fyrirtækisins.

Haft er eftir Klöru Björgu Jakobsdóttur, fiskifræðingi hjá Hafró, að sá hluti rallsins sem sneri að Breka og Þórunni hafi gengið afar vel. Árni Friðriksson hafi hins vegar bilað. Hann er þó kominn í lag og því verður farið aftur af stað í næstu viku og þær stöðvar kláraðar sem eftir eru á djúpslóð vestur af landinu. Rallinu lýkur því ekki formlega fyrr en þær stöðvar eru einnig komnar í höfn.

Myndin er af vef Vinnslustöðvarinnar.

Deila: