Úthlutun aflaheimilda í grásleppu

Deila:

Fimm bátar fá áætlað meira en 10 tonn af grásleppu í úthlutun Fiskistofu á aflaheimildum. Mest fær Rán SH frá Arnarstapa, eða 14.876 kg. Það gerir 1,29% af hlutdeild í grásleppukvóta. Þetta kemur fram á gagnasíðum Fiskistofu. Sigurey ST 22 frá Drangsnesi fær 13,276 tonn en Hlökk ST 66 frá Hólmavík 12,266 tonn.

Úthlutunin byggir á veiðireynslu. Eigendur og útgerðaraðilar geta komið athugasemdum á framfæri um útreikning á veiðireynslu fyrir 19. nóvember næstkomandi. Áætlun hlutdeildarinnar byggir á bráðabirgðaákvæði laga um breytingu á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum um stjórn fiskveiða (veiðistjórn grásleppu).

Við útreikning áætlunarinnar er stuðst við:

  • Veiðireynslu réttinda sem skráð eru á viðkomandi skip með grásleppuréttindi og leyfi.

  • Landanir grásleppu frá og með árinu 2018 til og með ársins 2022 að undanskildu árinu 2020, á þeim tíma sem leyfi til grásleppuveiða var í gildi plús einn dagur.

  • Heildar veiði í fiskveiðlandhelgi Íslands en ekki niður á svæði.

  • Leyfilegan heildarafla í grásleppu samkvæmt reglugerð um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2024/2025 og almanaksárið 2025.

Athugið:

  • Eftir 19. nóvember næstkomandi eru hlutdeildir endurreiknaðar ef þörf krefur og úthlutun framkvæmd.

  • Úthlutun skal framkvæmd fyrir 1. mars 2025.

  • Framsal aflahlutdeilda er óheimilt til 31. ágúst 2026.

  • Aðilar sem eiga grásleppuréttindi með veiðireynslu en ekki eru skráð á bát hafa fengið sent bréf í pósthólf útgerðaraðila á Ísland.is

Deila: