Þyrla sótti slasaðan skipverja

Deila:

Þyrla Landhelgisgæslunnar sóttir slasaðan skipverja um borð í fiskiskipi sem var við veiðar norður af Siglufirði í gærkvöldi. Þetta kemur fram í tilkynningu. Tilkynnt var um atvikið og skipinu siglt í átt að landi. Við nánara mat á ástandi mannsins og í ljósi slæmrar veðurspár var ákveðið að sækja manninn með þyrlu.

Fram kemur að þyrlan hafi farið á loft frá Reykjavík um klukkan 19:30. Hún var komin að skipinu um klukkan níu en þá var skipið um 60 sjómílur norður af Siglufirði.

Vel gekk að sögn að hífa manninn um borð í þyrluna en hún lenti svo á Reykjavíkurflugvelli klukkan 11 í gærkvöldi. Maðurinn var þá fluttur á spítala.

Myndin er úr safni.

Deila: