Ávirðingar um pólitísk hrossakaup

„Sonur og viðskiptafélagi Jóns Gunnarssonar þingmanns fullyrðir í upptökum sem teknar voru af manni sem sagðist vera fjárfestir að Jón hafi samþykkt beiðni Bjarna Benediktssonar um að þiggja sæti á lista gegn því að Jón komist í aðstöðu til veita veiðileyfi til Hvals hf. Það verði arfleifð Jóns að tryggja Kristjáni Loftssyni nánum vini sínum leyfið. Það sé hins vegar eitthvað sem eigi að fara leynt.”
Þetta kemur fram í inngangi greinar Heimildarinnar, sem birtist í dag. Jón Gunnarsson, sem Bjarni réði inn í matvælaráðuneytið á dögunum, lýsti því í viðtali á Bylgjunni í morgun, að tálbeita á vegum Heimildadrinnar hefði snjósnað um son hans. Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, ritstjóri Heimildarinnar, vísar því alfarið á bug að tálbeitan hafi verið á vegum miðilsins.
„Heimildin kom að engu leyti að gerð upptakanna. Ásakanir Jóns Gunnarssonar eru rangar, enda liggur fyrir að Jón hefur engar upplýsingar um aðkomu Heimildarinnar að málinu aðrar en spurningar blaðamanna um yfirlýsingar á upptökunni. Þvert á móti var tilurð fyrirspurnarinnar útskýrð í samtölum við son hans og viðskiptafélaga síðastliðinn föstudag,“ segir hún í yfirlýsingu.
Í Heimildinni er haft eftir syni Jóns, Gunnari Bergmann, að aldrei megi tala um að Jón sé að afla Hval hf. leyfis sem vinargreiða. „Við getum aldrei talað um að hann sé að gera það fyrir vin sinn.“ Þetta bendir til pólitískra hrossakaupa.
Í Heimildinni segir meðal annars: Á upptökunni heyrist Gunnar Bergmann, sonur og viðskiptafélagi Jóns, útskýra fyrir öðrum manni að Bjarni hafi gengið á eftir föður sínum um að taka sæti á listanum. „Á endanum sagði hann, „allt í lagi, ég er tilbúinn að taka fimmta sætið. En þú verður þá að gera eitthvað fyrir mig“,“ heyrist Gunnar segja.
