„Búum að sterku og þekktu vörumerki á heimsvísu“

„Þegar horft er til baka yfir 40 ára sögu fyrirtækisins þá eru að mínu mati tvö atriði sem standa upp úr og lögðu grunninn að því hversu farsæl starfsemin hefur verið frá upphafi. Í fyrsta lagi vil ég nefna framúrskarandi og samhentan starfsmannahóp frá fyrsta degi og það er einkennandi að hér er fólk með mjög langan starfsaldur sem segir sína sögu um tryggð við fyrirtækið. Í öðru lagi eru það stofnendurnir í upphafi sem voru fullir eldmóði og lögðu allt í sölurnar til að láta verkefnið ganga upp, höfðu meðal annars þekkingu og tengsl í sjávarútvegi og voru sannfærðir um að framleiðsluvörur Sæplasts væru það sem greinin þyrfti á að halda. Þá er ótalinn þáttur fyrsta framkvæmdastjóra Sæplasts, efnafræðingsins Péturs Reimarssonar sem var án nokkurs vafa mjög gæfusöm ráðning. Það lögðust allir á eitt á fyrstu árunum að láta verkefnið ganga upp og það tókst svo sannarlega,“ segir Arnar Snorrason, framkvæmdastjóri Sæplasts á Dalvík sem í ár fagnar 40 ára afmæli. Fyrirtækið er eitt af þekktustu þjónustufyrirtækjum í íslenskum sjávarútvegi á síðustu áratugum, hefur fengið fjölda viðurkenninga fyrir framleiðslu sína í gegnum tíðina, m.a. Útflutningsverðlaun forseta Íslands og er eitt þekktasta íslenska vörumerkið tengt sjávarútvegi á heimsvísu.
Járnahrúgan sem varð að stórfyrirtæki!
Sæplast hóf starfsemi á Dalvík árið 1984 á grunni gjaldþrota fyrirtækis sem hafði áður starfað í Garðabæ en stofnendurnir voru sannfærðir um að það væri hægt að koma fyrirtækinu á legg og í blómlega starfsemi. Viðskiptatækifærið kom í gegnum Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar þar sem Finnbogi Jónsson heitinn var framkvæmdastjóri.
„Í þessu sambandi má rifja upp fræga sögu þegar Matthías Jakobsson stjórnarformaður og Pétur Reimarsson framkvæmdastjóri stóðu yfir járnahrúgu af vélbúnaðinum þegar hann kom til Dalvíkur og Matthíasi féllust nánast hendur. „Út í hvað erum við eiginlega búnir að koma okkur,“ spurði hann Pétur sem svaraði að bragði að þetta ætti sko eftir að verða stórgróðafyrirtæki! Og sú varð raunin, alla vega er það tilfellið að Sæplast hefur skilað hagnaði af rekstri á hverju ári frá upphafi, að einu frátöldu. Það segir sína sögu,“ segir Arnar. Sömuleiðis var það afrek að koma svona öflugu fyrirtæki á legg á jafn stuttum tíma og raunin var því fjármálastofnanir voru mjög hikandi að leggja verkefninu lið í byrjun. Stofnendur og stjórn félagsins náðu hinu hins vegar að sannfæra viðhlítandi aðila og lögðu allt í sölurnar.
„Þekking og sýn Péturs Reimarssonar mótaði fyrirtækið mjög sterkt í upphafi og við búum að því enn þann dag í dag. Þar fór maður sem hafði bakgrunn og þekkingu í efnafræði, var víðsýnn sem meðal annars birtist í því hversu fljótt Sæplast fór að horfa út fyrir landsteinana með sína framleiðslu,“ segir Arnar.
Kerin umbyltu sjávarútveginum
Með tilkomu keranna frá Sæplasti viku plastkassarnir sem höfðu fram að því verið ráðandi í meðhöndlun afla í fiskiskipum og í vinnslum. Stálker voru líka notuð á þessum árum en plastkerin höfðu marga kosti.
„Hugmyndafræðin að baki kerunum var að bæta meðhöndlun á fiski, minnka sóun, auka verðmæti, bæta afköst en umfram allt að auka gæði í meðhöndlun á fiski á sjó, landi og í flutningum. Á tiltölulega skömmum tíma var íslenskur sjávarútvegur keravæddur og það má sjá í sögunni að á þessum fyrstu árum var verið að gera ýmsar breytingar á kerunum hjá okkur til að bæta enn frekar meðhöndlun aflans og þar með gæðin. Gæðahugsunin hefur alla tíð fylgt sjávarútveginum á Íslandi og þar með okkar starfsemi í þjónustu við greinina og sú hugsun hefur verið drifkrafturinn í öflugri vöruþróun sem Sæplast hefur ástundað frá fyrsta degi. Það er enginn vafi að markviss og stöðug vöruþróun er eitt af gæfusporunum í okkar sögu. Þar er ég bæði að tala um þróun á framleiðsluvörunum sjálfum en líka stöðuga þróun í verksmiðjunni hér á Dalvík,“ segir Arnar.

