Barði á kolmunaveiðum við Færeyjar
Barði NK hélt til kolmunnaveiða í færeysku lögsögunni á föstudaginn að því er frá greinir á heimasíðu Síldarvinnslunnar. Þar er rætt við Þorkel Petursson skipstjóra sem ber að að þeir séu við veiðar norðaustan við eyjarnar. Veiðar hafi gengið þokkalega. „Nú erum við á þriðja holi, en við fengum 420 tonn í fyrsta holinu eftir átta tíma og síðan 150 tonn í öðru holinu eftir sex. Þetta lítur ágætlega út. Það er töluvert að sjá en hann virðist skila sér frekar illa í birtunni. Það fer síðan að ganga betur þegar líður á daginn. Það er hið þokkalegasta veður eins og er þannig að það er bara bjart yfir okkur hér um borð,” segir Þorkell við heimasíðuna.
Í fréttinni segir að Fiskimjölsverksmiðja Síldarvinnslunnar í Neskaupstað hafi tekið á móti 5.000 tonnum af kolmunna til vinnslu í októbermánuði en það voru Barði NK og Beitir NK sem fluttu þann afla að landi.