Mikilvægt að fiskvinnslan sé í höndum heimamanna

Rætt við Björku Ingvarsdóttur, framkvæmdastjóra Vilja fiskverkunar ehf. á Hólmavík
„Við erum stolt af þessu verkefni. Þetta fer vel af stað hjá okkur en ennþá eru næg verkefni eftir,“ segir Björk Ingvarsdóttir framkvæmdastjóri Vilja fiskverkunar ehf., sem rekur nýja fiskvinnslu á Hólmavík. Starfsemin er í fyrrum húsakynnum Hólmadrangs en þar hafði áður verið rækjuvinnsla um árabil. Uppsetning vinnslunnar gekk hratt og vel fyrir sig og margir sem lögðu hönd á plóg við það verkefni. „Ég gæti nefnt mörg nöfn en þeir vita hverjir þeir eru,“ segir hún en í raun má segja ótrúlegt að hafa komið heilli fiskvinnslu upp á rúmlega einum mánuði.
Byggðakvótaauglýsing varð kveikjan
Björk og eiginmaður hennar Pétur Matthíasson standa að nýju fiskvinnslunni og eiga ríflega helming hennar. Að auki eiga Gunnlaugur Sighvatsson og Gámaþjónusta Hólmavíkur hlut í félaginu. Björk og Pétur reka einnig útgerð á Hólmavík, Vissu Útgerð ehf., sem gerir út línubátinn Hlökk ST. Útgerðina keyptu þau af foreldrum Bjarkar árið 2021 en þau höfðu rekið hana frá árinu 1999. Björk segir hjólin hafa farið að snúast þegar Byggðastofnun auglýsti í lok síðastliðins árs sértækan byggðakvóta upp á 500 tonn fyrir Strandabyggð. „Útgerðarmenn hér á svæðinu fóru að skoða möguleikana sem lágu í því að fá viðbótarkvóta inn í byggðarlagið og úr varð mikil samstaða í hópnum sem endaði með því að við sendum inn sameiginlega umsókn um aflamarkið,“ segir Björk en nú er Vilji fiskverkun umsjónaraðili að samningi við Byggðastofnun ásamt 11 samstarfsaðilum og er samningurinn til næstu 6 ára.
Mikilvægt að vinnslan sé í eigu heimamanna
Ákveðinn vendipunktur varð í umsóknarferlinu þegar útgerð utan svæðisins hafði hug á að setja upp vinnslu á svæðinu í kjölfar þess að í boði var sértækt aflamark. „Við sáum fyrir okkur að útgerð á staðnum gæti jafnvel hlotið skaða af, yrði þetta ofan á. Almenni byggðakvótinn sem var hér var þannig að undanþága var frá vinnsluskyldu. Þegar þessi staða kom upp ákváðum við að leggja allt undir og setja upp okkar eigin vinnslu. Hugsunin hjá okkur er sú að heimabátar njóti aukinna aflaheimilda á staðnum og geti landað inn til vinnslunnar okkar. Við teljum gríðarlega mikilvægt að vinnslan sé í eigu heimamanna því hér viljum við byggja upp til framtíðar og stefnum að því að stækka, þróast og verða sjálfbær. Ég tel þetta verkefni geta styrkt byggðafestu á staðnum og lyft okkur aðeins upp úr þeirri lægð sem hefur verið yfir byggðarlaginu,“ segir Björk.
Ómetanlegt að finna velviljann
Búið er að ráða starfsfólk fyrir veturinn og munu um 17 manns starfa há Vilja fiskverkun í vetur. „Við höfum einnig verið heppin með starfsfólk í sumar sem allt hefur lagt sitt af mörkum, en við náðum að vinna um 150 tonn á fyrsta eina og hálfa mánuðinum. Við sem stöndum að þessu erum fyrst og fremst þakklát fyrir áhuga íbúa hér á staðnum í okkar garð, það er ómetanlegt að finna velviljann frá samfélaginu. Starfsfólkið okkar hefur einnig staðið sig vel og hjálpað mikið við að starta þessu, það verður seint þakkað,“ segir Björk sem er bjartsýn á að vel gangi næstu misserin. „Byrjunin lofar góðu.“