Skotið var á dróna Fiskistofu
Skotið var á dróna sem eftirlitsmaður Fiskistofu notaðist við er hann sinnti eftirliti á þriðjudag. Frá þessu segir á vef Fiskistofu. Þar er rakið að þegar skipverjar hafi tekið eftir drónanum hafi einn þeirra farið inn í stýrishús og gripið þar til skotvopns. Hann hafi skotið þremur skotum að drónanum frá skipinu. Eftirlitsmaður Fiskistofu kveikti á upptöku eftir að skoti hafði verið hleypt af og náði verknaðinum á myndband.
„Atvikið var tilkynnt til lögreglu sem tók á móti skipinu við löndun og var Fiskistofa í sambandi við Landhelgisgæsluna sem brást hratt og vel við. Landhelgisgæslan hafði einnig samband við lögreglu og tók rannsóknarlögreglumaður skýrslur á vettvangi.”
Fiskistofa lítur atvikið mjög alvarlegum augum og metur það sem mikla ógn við störf og öryggi eftirlitsmanna.
Fram kemur að athæfið geti fallið undir brot gegn valdstjórninni samkvæmt 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga auk brota á vopnalögum. „Með þessari háttsemi var eftirlitsmaður Fiskistofu hindraður við framkvæmd skyldustarfa sinna með alvarlegri og ógnandi verknaðaraðferð. Fiskistofa kemur til með að fylgja málinu eftir með kæru á hendur skipverjunum til lögreglu.”