Þór dró hvalshræ á haf út
Áhöfnin á varðskipinu Þór fjarlægði hvalhræ sem var á reki í miðjum Hvalfirði í vikunni. Þetta kemur fram í færslu Landhelgisgæslunnar á Facebook.
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar fékk vitneskju hvalhræið síðdegis á þriðjudag eftir að vegfarandi tilkynnti lögreglu um málið.
Varðskipið Þór var sent á staðinn og fann hvalinn laust fyrir klukkan tíu um kvöldið. Að sögn gekk vel að undirbúa hræið fyrir flutning.
Stroffu var komið utan um sporð þess og að því búnu var siglt með það út fjörðinn. Stefnt var að því að sigla með hvalhræið djúpt út af Snæfellsnesi þar sem því verður sleppt utan sjávarfallastrauma.