Tilraunaeldi á loðnu gekk vel

Deila:

Vísindamenn á tilraunaeldisstöð Hafrannsóknastofnunar hafa í fyrsta sinn ræktað loðnu frá klaki til fullorðinsaldurs í eldisumhverfi. Frá þessu greinir á vef hafró. Þar segir að loðnuhrogn hafi verið frjóvguð í uppsjávarskipinu Víkingur AK 100 og flutt þaðan í tilraunaeldisstöðina á Stað við Grindavík, þar sem lirfurnar klöktust út 30 dögum síðar.

Í fréttinni segir að ræktun loðnulifranna hafi byggst á eldisaðferðum sem hafi verið þróaðar í eldisstöðinni til eldis á þorski með góðum árangri. „Við stöðugt hitastig (7°C) var vöxtur loðnunnar jafn og ör, og fyrstu loðnurnar náðu kynþroska aðeins ári frá klaki. Á öðru ári dró úr vexti, og loðnan náði hámarkslengd, 18,4 cm, á aðeins 2,6 árum, sem er umtalsvert skemmri tími en hjá villtri íslenskri loðnu.”

Þessi rannsókn veitir að sögn mikilvæga innsýn í vaxtarfræði og líffræði þessarar mikilvægu tegundar og leggur grunn að frekari loðnurannsóknum í tilraunaumhverfi. Þrátt fyrir að loðnan sé afar viðkvæm fyrir meðhöndlun gerir stuttur líftími hennar hana að efnilegu tilraunadýri.

Frekari loðnurannsóknir eru nú að sögn í framkvæmd í tilraunaeldisstöðinni, og búist er við að niðurstöður þeirra verði birtar á komandi árum.

Grein um rannsóknina, sem nýlega var birt “Cultivation and Growth Dynamic (Mallotus villosus) from Hatch to Adulthood”, má nálgast hér.

YouTube myndband sem gefur innsýn í eldisferilinn má sjá hér.

Deila: