Ufsatorfa í Hafnarfjarðarhöfn

Deila:

„Það eru ekki bara falleg jólaljós í Hafnarfirðinum sem gleðja augað nú um stundir heldur hefur óvenju þétt ufsatorfa gert sig kærkomna í firðinum fagra.” Þetta kemur fram í færslu á Facebook-síðu Hafrannsóknastofnunar.

Þar kemur fram að óljóst sé hvað valdi þessari hegðun en að um sé að ræða ufsa sem hafi klakist úr eggjum í vor. Þessi fjöldi ufsa sé óvenjumikill en ufsaseiði á fyrsta ári séu þó mjög algeng í höfnum allt í kringum landið. Uppeldissvæði ufsa séu að jafnaði grynnra en t.d. þorsks og ýsu.

„Ýmislegt kemur til greina. Þarna er t.d. sterkir ljóskastarar sem mögulega laða ufsann að, mögulega er þarna affall frá frá bænum sem skapar aðstæður sem ufsinn sækir í og kannski er hann að forðast þá sem vilja éta hann t.d. skarfa, endur, seli og hvali. Mikið er af fiskiöndum (toppöndum og gulöndum) í höfninni, einhverjir selir og síðan hafa hnúfubakar haldið sig í mynni Hafnarfjarðar undanfarnar vikur.”

Deila: