Átta nýir tollfrjálsir kvótar

Þann 1. janúar 2025 taka gildi átta nýir tollfrjálsir innflutningskvótar til Evrópusambandsins (ESB). Kvótarnir veita aukna útflutningsmöguleika fyrir íslenskar afurðir bæði úr sjávarútvegi og fiskeldi. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðssins.
Samhliða viðræðum um framlag til Uppbyggingarsjóðs EES sömdu Ísland og ESB um markaðsaðgang fyrir íslenskar sjávarafurðir þann 30. nóvember 2023. Samningurinn nær yfir tímabilið 1. maí 2021 til 30. apríl 2028 og felur í sér átta tollkvóta fyrir fleiri en 50 tollanúmer.
„ESB er okkar mikilvægasti markaður og nýju tollkvótarnir veita tollfrjálsan aðgang fyrir margfalt fleiri afurðir en hingað til,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. „Stórir safnkvótar auka síðan sveigjanleika útflytjenda og tryggja vonandi að kvótarnir nýtist til fulls. Þetta er jákvætt skref en ég vonast auðvitað til þess að þau verði enn fleiri í átt að auknu tollfrelsi, bæði í inn- og útflutningi.“

