Segir ekki svigrúm til tvöföldunar veiðigjalda
„Þegar rætt er um réttlát auðlindagjöld þarf hins vegar að hafa í huga hvernig staðan er í dag bæði hér á landi og hjá samkeppnisaðilum okkar erlendis. Það liggur fyrir að kolefnisgjöld, sem ekki eru til staðar í sumum samkeppnislöndum okkar í sjávarútvegi, eru að hækka mikið um áramótin. Orkukostnaður hefur sömuleiðis rokið upp á árinu og umhverfisvæn raforka er af skornum skammti. Þá liggur fyrir að veiðigjöld á uppsjávarfisk munu margfaldast um áramótin. Þannig að svigrúm til tvöföldunar á veiðigjöldum, eða stórfelldra hækkana á þeim, er ekki til staðar í núverandi umhverfi.”
Þetta kemur fram í áramótapistli Gunnþór Bjarnar Ingasonar, forstjóra Síldarvinnslunnar. Hann óskar nýrri ríkisstjórn velfarnaðar í sínum störfum fyrir land og þjóð. Hann segir að sjávarútvegurinn hafi ekki hafnað réttlátum auðlindagjöldum.
Þess má geta að Síldarvinnslan hagnaðist um 10 milljarða króna árið 2023.
Forstjórinn ræðir líka um strandveiðar.
„Ríkisstjórnin hyggst festa í sessi 48 daga í strandveiðunum en tilfærsla á aflaheimildum hefur verið nefnd í því samhengi. Verði um frekari tilflutning að ræða úr aflamarkskerfinu yfir í strandveiðina þýðir það einfaldlega að fyrirtækin verða að bregðast við með hagræðingu. Það getur falið í sér samþjöppun vinnslu og fækkun skipa og þar af leiðandi gæti sjómönnum, sem hafa atvinnu af veiðum, fækkað. Íslendingar tóku upp kvótakerfi og stýringu á veiðum því sjávarútvegurinn sem atvinnugrein var kominn í öngstræti sökum ofveiði og óhagkvæms rekstrar. Óheftar ólympískar strandveiðar, án stýringar á magni eða fjölda, eru síst til þess fallnar að auka verðmæti eða hag þjóðarinnar. Sagan sýnir okkur það og nægir einnig að horfa til Noregs þar sem verð lækkar á ákveðnum tímum ársins þegar smábátar keppast um að veiða óheft á ákveðnum tíma. Þess vegna á ég erfitt með að trúa að matvælaráðherra ætli að auka aflaheimildir umfram vísindalega ráðgjöf sem hefur verið hornsteinn íslenska fiskveiðistjórnunarkerfisins. Í dag byggja gildandi aflaregla og vottanir á þeirri stýringu.”