Mikil hækkun á verðlagsstofuverði

Deila:

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 6. janúar 2025, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum. Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 6. janúar 2025. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998.

Þetta kemur fram á vef verðlagsstofu. Hér sést hver hækkunin er:

  • Slægður þorskur hækkar um 8,0%
  • Óslægður þorskur hækkar um 8,0%
  • Slægð ýsa hækkar um 11,1%
  • Óslægð ýsa hækkar um 11,1%
  • Ufsi helst óbreyttur
  • Karfi helst óbreyttur
Deila: