Fengu tundurdufl í veiðarfærin
Fiskvinnsluhús Útgerðarfélags Akureyringa var rýmt skömmu eftir hádegi í dag vegna tundurdufls sem kom í veiðarfæri togarans Bjargar EA. Duflið kom í síðasta holi veiðiferðarinnar. Björg kom til Akureyrar í morgun. Þetta kemur fram í færslu á vef Samherja.
Fram kemur að duflið hafi verið illa farið og mat áhafnarinnar hafi verið að um gamla járntunnu væri að ræða. Við nánari athugun hafi hluturinn reynst vera tundurdufl.
„Haft var samband við sprengjusérfræðinga Landhelgisgæslunnar og eru þeir væntanlegir norður síðdegis. Ákveðið var að rýma svæðið í eitt hundruð metra radíus frá bryggju, því var vinnslu hætt í dag til að gæta fyllsta öryggis. Eins og fyrr segir eru sérfræðingar Landhelgisgæslunnar væntanlegir til Akureyrar síðdegis.”