Hagnaður sjávarútvegsins dróst saman
„Hagnaður fyrirtækja í fiskveiðum og vinnslu fyrir afskriftir, fjármagnskostnað og tekjuskatt (verg hlutdeild fjármagns, EBITDA) sem hlutfall af heildartekjum sjávarútvegs minnkaði á milli áranna 2022 og 2023. Frá árinu 2022 lækkaði hlutfallið (án milliviðskipta) úr 37% í 36,5%, hækkaði í fiskveiðum úr 24,6% árið 2022 í 24,9% af tekjum árið 2023 og lækkaði í fiskvinnslu úr 21,1% í 18,3%.”
Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar. Þar segir að hreinn hagnaður EBT þessara fyrirtækja samkvæmt árgreiðsluaðferð hafi dregist saman á milli ára og numið þannig 24% árið 2023 samanborið við 26,3% árið 2022.
„Í fjárhæðum nam hagnaðurinn tæpum 73 milljörðum króna eftir að gjaldfærð hefur verið árgreiðsla að fjárhæð rúmum 38 milljörðum króna. Sé miðað við hefðbundna uppgjörsaðferð nam hagnaðurinn rúmum 70 milljörðum króna eða 23,2% af tekjum árið 2023 borið saman við 27,3% árið áður.”
Heildareignir í sjávarútvegi voru samkvæmt efnahagsreikningi í árslok 2023 1.059 milljarðar króna. Heildarskuldir voru 554 milljarðar og eigiðfé því rúmir 505 milljarðar króna.