Hafró kynnir nýja aðferðafræði

Þróun eigindlegra líkana fyrir vistkerfi sjávar: Ný aðferðafræði við raunprófun beitt á uppsjávarfiskistofna við Ísland, Færeyjar og Grænland.
Þetta er yfirskrift fréttar á vef Hafró. Þar kynnir stofnunin framlag sitt til nýrrar rannsóknar á raunprófun eigindlegra líkana fyrir vistkerfi uppsjávarfiskistofna til greiningar á nýtingu áhrifa á náttúru og hagrænna og félagslega þátta.
Rannsóknin, sem birt var í Current Research in Environmental Sustainability, er hluti af Marine SABRES verkefninu, sem styrkt er af Evrópusambandinu. Í greininni er kynnt aðferð sem nefnist „aðferðafræði áætlaðrar nytjar“ (e. Presumed Utility Protocol), með það að markmiði að bæta gæði og áreiðanleika eigindlegra líkana eins og orsakatengslarits (CLDs), sem er myndrit til að lýsa og greina tengsl þátta og atburða innan ákveðins kerfis.
Fram kemur að þrír sérfræðingar frá Hafró hafi tekið þátt í þróun og beitingu þessarar aðferðar.
Helstu niðurstöðurnar voru meðal annars þær að þörf er á betri samþættingu á umhverfisbreytileika í tengslum við pólitískar og efnahagslegar forsendur, sérstaklega í samhengi við úthlutun aflamarks. Einnig sýndu niðurstöður fram á mikilvægi þess að taka sjónarmið hagsmunaaðila með í reikninginn og aðlaga líkön til að þau geti endurspeglað breytileika vistkerfisins.
Nánar má lesa um verkefnið hér.

