Byggðakvóti dregst saman um 27%

Deila:

Samdráttur í úthlutuðum byggðakvóta á milli ára nemur 27%. Þetta má lesa úr tilkynningu á vef Stjórnarráðsins þar sem tilkynnt er um úthlutun byggðakvóta. Byggðakvótinn dregst saman um 1.022 tonn.

Almennum byggðakvóta er úthlutað til 42 byggðarlaga í 25 sveitarfélögum á fiskveiðiárinu 2024-2025, að því er fram kemur í fréttinni.

„Atvinnuvegaráðherra er heimilt að ráðstafa aflamagni í óslægðum botnfiski til að styðja byggðarlög í alvarlegum og bráðum vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi og mæta áföllum sem fyrirsjáanleg eru vegna verulegra breytinga á aflamarki einstaka tegunda. Heildarráðstöfun byggðakvóta til byggðarlaga á fiskveiðiárinu nemur alls 3.807 þorskígildistonnum. Heildarúthlutun kvóta dregst saman um 1.022 þorskígildistonn milli ára og verða breytingar á magni úthlutaðra þorskígildistonna til einstakra byggðarlaga í samræmi við það.”

Byggðalög með færri en 400 íbúa fá 2.259 þorskígildistonnum úthlutað og byggðarlög með fleiri en 400 íbúa fá úthlutað 1.548 þorskígildistonnum. Alls fá ellefu byggðalög lágmarksúthlutun upp á 15 þorskígildistonn og þrjú byggðalög fá hámarksúthlutun 285 þorskígildistonna.

Úthlutun almenns byggðakvóta fiskveiðiársins 2024-2025 er eftir landshlutum:

  • Austurland – 435 tonn
  • Norðurland eystra – 1.064 tonn
  • Norðurland vestra – 345 tonn
  • Suðurland – 30 tonn
  • Suðurnes – 145 tonn
  • Vestfirðir – 1.593 tonn
  • Vesturland – 195 tonn

Fram kemur að eftirstöðvar frá fyrra ári komi líka til ráðstöfunar. Alls nemur flutningur almenns byggðakvóta milli ára nær 1.038 þorskígildistonnum.

Sundurliðun á úthlutun byggðakvóta

Sjá nánar hér.

Deila: