Sigurður Arnar til Laxeyjar

Laxey hefur ráðið Sigurð Arnar Magnússon í starf verkefnastjóra á framkvæmdasviði. Sigurður Arnar, sem er uppalinn í Vestmannaeyjum, lauk nýverið MS-gráðu í iðnaðar- og kerfisverkfræði frá The Ohio State University með áherslu á aðfangakeðjustjórnun og framleiðslukerfi. Þetta kemur fram á Facebook-síðu fyrirtækisins.
Þar segir að Sigurður hafi reynslu af verkefnastjórnun, ferlagreiningu og hafi unnið að þróun stafrænna lausna. Fram kemur að með skipulagshæfni hans og færni í teymisvinnu muni Sigurður Arnar gegna mikilvægu hlutverki í uppbyggingu Laxey.