Þrjú skip lönduðu kolmuna frá Færeyjum

Deila:

Uppsjávarskipin Beitir, Börkur og Vilhelm Þorsteinsson lönduðu um helgina kolmuna eftir veiðiferð í færeysku lögsuna. Samtals lönduðu skipin þrjú 3.700 tonnum. Aflinn mun vera ágætt hráefni, að því er fram kemur í frétt Síldarvinnslunnar. Vinnsla aflans hófst á sunnudag og gengur vel að sögn.Ólafur Gunnar Guðnason á Beiti segir að veiðin hafi verið heldur rýr.

„Holin hjá okkur gáfu frá 40 tonnum og upp í 350 tonn og það var yfirleitt lengi dregið. Veitt var bæði sunnan og vestan við Færeyjar, mest í Ræsinu vestan við eyjarnar. Þó ekki hafi verið mikill kolmunni á ferðinni þarna núna þá getur það breyst á skömmum tíma. Auðvitað bíðum við frétta af nánari loðnuleit og notum tímann til að skipta um togvíra. Næst á dagskrá gæti verið loðna en eins þurfa menn að vera tilbúnir í að veiða kolmunna niður við Rockall,” sagði Ólafur Gunnar.

Deila: