Sighvatur landaði í Grindavík

Línuskip Vísis, Sighvatur GK, kom til löndunar í heimahöfn í Grindavík í gærmorgun. Aflinn var 110 tonn, mest langa en einnig nokkuð af þorski og ýsu. Frá þessu er sagt á vef Síldarvinnslunnar.
Þar er rætt við Aðalstein Rúnar Friðþjófsson skipstjóra. Þeir voru aðallega í Meðallandsbugtinni og lögðu 43.000 króka. Fram kemur lagnirnar hafi verið fjórar. Hver lögn er 60 km en 1,4 metrar munu vera á milli króka.
„Aflinn var mest langa og það var akkúrat það sem við vildum. Þetta var óskaaflasamsetning. Við urðum ekkert varir við loðnu í túrnum en aðeins varir við síld. Það var hvasst og mikill straumur í þessari veiðiferð. Við vorum 25 tíma frá Grindavík í Meðallandsbugtina á móti veðri en einungis 14 tíma til baka,” sagði Aðalsteinn Rúnar. Sighvatur hélt á ný til veiða í gærkvöldi.