Bíða af sér bræluna

Vísistogarinn Jóhanna Gísladóttir GK er að landa í Hafnarfirði í dag en þangað var flúið undan veðri. Frá þessu er sagt á vef Síldarvinnslunnar.
Þar er rætt við við Einar Ólaf Ágústsson skipstjóra. Fram kemur að skipið hafi landað rúmlega 50 tonnum í Grindavík á þriðjudag, eftir þrjá sólarhringa á miðunum. Þeir hafa að undanförnu verið að veiðum í Kolluálnum.
„Við höfum verið að eltast við þorsk sem er að ganga þarna upp. Aflinn hefur mestmegnis verið þorskur, aðeins karfablandaður. Já, við ætlum að leyfa honum að blása úr sér mesta æsingnum og síðan munum við kíkja út á miðin á ný,” er haft eftir honum.