Ívið lægra mat á stærð veiðistofns loðnu

Uppsjávarveiðiskipin Polar Ammassak og Aðalsteinn Jónsson hafa í samvinnu við Hafrannsóknastofnun verið við loðnumælingar suðaustan- og austan við land frá mánudegi til föstudags þessarar viku. Frá þessu greinir á vef Hafró.
Þar segir að markmiðið hafi verið að fá endurtekna mælingu á magni loðnu í megingöngunni, á þeim slóðum til samanburðar við niðurstöður mælinga í vikunni á undan. „Bæði skipin fóru yfir allt svæðið eftir mismunandi leiðarlínum og því er um að ræða tvær óháðar mælingar á magninu þar.”
Fram kemur að bráðabirgða niðurstöður sýni ívið lægra mat á stærð veiðistofnsins en í mælingunni í vikunni á undan á sömu slóðum. „Það er því ljóst að niðurstöðurnar munu leiða til óbreyttrar ráðgjafar um engar veiðar. Hafrannsóknastofnun ráðgerir að Árni Friðriksson fari til loðnuleitar norður að landinu öðru hvoru megin við næstu helgi.”