Nýtt hafrannsóknaskip á heimleið

Þórunn Þórðardóttir HF-300, nýtt skip Hafrannsóknastofnunar, lagði af stað frá Vigo á Spáni í gær áleiðis til Hafnarfjarðar.
Árið 2018 samþykkti Alþingi á sérstökum hátíðarfundi í tilefni af 100 ára fullveldisafmæli Íslands að hefja undirbúning byggingar nýs hafrannsóknaskips og var samið um smíðina við Astilleros Armon skipasmíðastöðina í Vigo á Spáni árið 2022.
Þórunn Þórðardóttir HF-300 leysir rannsóknaskipið Bjarna Sæmundsson af í skipastól Hafrannsóknastofnunar en það skip hefur þjónað í rúmlega hálfa öld.
Nýja hafrannsóknaskipið er 70 metrar að lengd og 13 metrar breitt.
Skipið er hannað af Skipasýn ehf.
