Læti í Sandgerðishöfn

Hafa þurfti snör handtök í Sandgerðishöfn um helgina á háflóðinu. Mikil hreyfing var í höfninni og bátar farnir að losna.
Á meðfylgjandi mynd má sjá öfluga menn tryggja bátinn Huldu GK, sem var undir löndunarkrana. Björgunarsveitin Sigurvon var einnig kölluð út vegna báts sem átti að hafa losnað en þegar betur var að gáð var svo ekki.
Fram kemur í tilkynningu frá Landsbjörgu að talsvart hafi gengið af sjó inn fyrir varnargarðinn í höfninni.
Engar fregnir hafa borist af tjóni úr Sandgerðishöfn.
Meðfylgjandi mynd var tekin á vettvangi um helgina. Hún sýnir glöggt hve sjávarstaðan var há.

