Níu þúsund tonn af kolmuna um helgina

Deila:

Níu þúsund tonn af kolmuna bárust til Neskaupstaðar um helgina. Beitir kom með 2.600 tonn að landi en hann var við veiðar vestur af írlandi. Þangað eru um 850 sjómílur frá Neskaupstað.

Vilhelm Þorsteinsson kom í kjölfarið með 3.100 tonn en Börkur fylgdi þar á eftir með 3.200 tonn. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar.

Þrjú norsk skip eru síðan á leið til Síldarvinnslunnar með kolmunnafarma, samtals rúm 5.000 tonn og er hið fyrsta þeirra væntanlegt til Neskaupstaðar á miðvikudagskvöld.

Að sögn Hafþórs Eiríkssonar, verksmiðjustjóra í Neskaupstað, er kolmunninn sem nú veiðist hið ágætasta hráefni. „Hann skilar góðum afurðum, úrvalsmjöli og töluverðu lýsi,” sagði Hafþór í samtali við heimasíðuna. Skipað verður út 2.200 tonnum af mjöli í Neskaupstað síðar í þessari viku.

Deila: