Tveir menn fóru í sjóinn

Deila:

Tveir lentu í sjónum við Akraneshöfn í morgun þegar alda gekk yfir höfnina. Annar komst úr sjónum af sjálfsdáðum en hinum var bjargað úr sjónum. Sá liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi.

Aldan tók að sögn með sér tvo bíla, sem voru á bryggjunni. Ökumaður annars þeirra fór með út í sjó en auk þess fór gangandi vegfarandi sömu leið. Mbl.is greindi fyrst frá þessu.

 

Deila: