Laxá undirbýr verulega aukningu

„Það er ljóst að þau stóru verkefni í landeldi á laxfiski sem eru komin á framkvæmdastig hjá viðskiptavinum Laxár, munu kalla á umtalsverða framleiðsluaukningu hjá okkur á næstu árum. Við munum því nýta þetta ár til að undirbúa fjárfestingar hér í verksmiðjunni og stækka svo verksmiðjuna á næsta ári,“ segir Gunnar Örn Kristjánsson, framkvæmdastjóri Laxár Fiskafóðurs á Akureyri.
Spennandi tímar fram undan í landeldi á laxi
Á síðustu árum hafa fjárfestar séð möguleika á að nýta góðar aðstæður hérlendis til að byggja upp umhverfsvæna framleiðslu á laxi í landeldisstöðvum. Í dag eru sex verkefni í gangi og þar af tvö fyrirtæki komin með fisk í kerin og önnur þrjú byrjuð á framkvæmdum. „Það mun því verða umtalsverð framleiðsluaukning frá núverandi 2.500 tonnum af landeldislaxi þar sem hvert þessara verkefna er með 8.000 tonna markmið í fyrsta áfanga. Þrátt fyrir að mögulegt sé að einhver verkefni verði ekki að veruleika þá er líklegt að magn af landeldislaxi geti hæglega farð upp í 30.000 tonn á næstu fimm árum,“ segir Gunnar Örn.
