Ný Cleopatra fer á gildruveiðar

Deila:

Trefjar afhentu á dögunum nýjan Cleopatra bát til Lyme Regis í Dorset á suðurströnd Englands. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Báturinn hefur fengið nafnið Maverick III. Maverick III er af gerðinni Cleopatra 33. Eigandi og skipstjóri bátsins er Brett Newton frá Beer. Báturinn er útbúinn fyrir gildruveiðar á töskukrabba, beitukóngi og humri. Reiknað er með að hann afkasti 700 gildrum á dag.

Fram kemur aðalvélin sé FPT C90 og hún sé tengd við 286IV gír. Siglingatækieru frá Simrad/Hondex/Olex.

Báturinn er með vökvadrifinni bógskrúfu sem er tengdur við sjálfstýringu bátsins.

Fram kemur í tilkynningunni að lestin sé útbúin sprinklerkerfi til að halda lífinu í aflanum um borð.

  • Öryggisbúnaður bátsins er frá Viking.
  • Það er pláss fyrir allt að 12 x 380 lítra kör í lestinni.
  • Í lúkar eru kojur fyrir þrjá auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofni og ísskáp.
  • Að sögn eigandans verður báturinn gerður út frá Lyme Regis allt árið um kring.

Deila: