Segir veiðigjöldin meira högg en tollarnir

Deila:

Binni í Vinnslustöðunni, Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, segir að tvöföldun veiðigjalda verið meira högg fyrir útgerðina en tollahækkun Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Um þetta fjallar hann í færslu á Facebook.

Hann segir að tollar Bandaríkjanna, sem verða 10% á Ísland, muni verða högg fyrir íslenskan sjávarútveg og íslenskt þjóðarbú. Skattur sé skattur og hafi áhrif, sama hvað hver segi. „Tollurinn mun líklega skiptast á milli neytenda í USA vegna hærra verðs og íslensks þjóðarbús vegna lægra verð (tekjur ríkis, sveitarfélaga, sjávarútvegsfyrirtækja og starfsmanna þeirra minnka),- Þetta verður ekki bara tap íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja. Báðir tapa en ríkissjóður USA mun fá auknar tekjur í fyrstu umferð (fyrstu 1 – 2 árin),” segir hann.

Hann segir að langtímaáhrif tollahækkana (eftir 2 – 4 ár) verði þau að verðbólga í USA hækki og kaupmáttur Bandaríkjamanna minnki. Það þýði að heimili í USA hafi minna milli handanna og neysla dregst saman. Þannig minnki skattstofnar ríkissjóðs (tekjur ríkissjóðs minnki) og á endanum tapi allir.
„En skattur er skattur og tvöföldun veiðigjalds hefur svipuð áhrif. Í fyrstu umferð hækka tekjur ríkissjóðs Íslands en í þeirri næstu mun sjávarútvegurinn draga saman fjárfestingar og ráðast í aðgerðir til að mæta skattahækkunum með niðurskurði á kostnaði. Það mun svo minnka skattstofna ríkissjóðs Íslands með sama hætti og í USA. Skattar eru skattar, hverju nafni sem þeir nefnast. Eini munurinn á þessu öllu er að veiðigjald hefur ekki áhrif á ríkissjóð eða neytendur í Bandaríkjunum. Við getum ekki flutt íslenska skatta út eins og Trump gerir með tollahækkunum sínum.”
Deila: