Fiskiskipum fækkar

Fjöldi fiskiskipa á Íslandi hefur dregist saman á undanförnum árum, samkvæmt tölum frá Samgöngustofu. Í árslok 2024 voru skráð 1.531 fiskiskip. Þar af voru 820 smábátar, og hefur sá fjöldi haldist nokkuð stöðugur undanfarin ár. Flestir smábátar eru á bilinu 3–7 tonn að stærð og eru um 88% þeirra eldri en 20 ára.
Togurum hefur hins vegar farið fækkandi með hverju árinu; voru þeir 70 talsins árið 2004 en aðeins 37 árið 2024. Sama þróun hefur átt sér stað hjá vélskipum, sem voru 869 árið 2004 en eru nú 675.
