Meirihlutaeigandi skal vera um borð

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur unddirritað reglugerð um strandveiðar. Í henni er kveðið á um að í hverri strandveiðiferð skuli vera einn einstaklingur um borð sem á með beinum eða óbeinum hætti í gegn um lögaðila meira en 50% í skipinu. Þetta útilokar að tveir eða fleiri geti átt skip saman og róið til skiptis.
Í reglugerðinni segir orðrétt: „Um borð í hverri strandveiðiferð skal vera einn einstaklingur sem er lögskráður á skipið og á að lágmarki beint eða óbeint í gegnum lögaðila, meira en 50% eignarhlut í skipinu. Eignarhald skips ræðst af skráningu í skipaskrá Samgöngustofu og eignarhald lögaðila miðast við skráningu raunverulegs eiganda hjá fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra.”
Umsóknir um leyfi til strandveiða skulu berast Fiskistofu fyrir 22. apríl ár hvert og skal í umsókn tilgreina upphafsdag strandveiða innan strandveiðitímabils.
Í reglugerðinni kemur einnig fram að skráning aflaupplýsinga far fram samkvæmt ákvæðum reglugerðar um stafræna skráningu og skil aflaupplýsinga. „Við vigtun á hafnarvog skal löggiltur vigtarmaður tengja saman aflaskráningu við það auðkenni sem aflaupplýsingar strandveiðibáts hefur fengið með stafrænni skráningu og skilum skipstjóra úr hverri veiðiferð.”
Reglugerðin var undirrituð 1. apríl sl.