Tvöföld björgunaraðgerð á Breiðafirði

Í gærmorgun, mánudaginn 22. apríl, voru áhafnir björgunarskipanna Bjargar á Rifi og Jóns Gunnlaugssonar á Akranesi kallaðar út vegna fiskibáts sem hafði misst vélarafl suður af Snæfellsnesi, skammt vestur af Landbrotavík. Tveir voru um borð í bátnum en engin hætta var talin steðja að þar sem skipverjar höfðu varpað akkeri og héldu stöðu sinni.
Varðskipið Freyja, sem var statt skammt undan Hafnarfirði, var einnig kallað til aðstoðar.
Björgunarskipið Björg kom að bátnum rétt fyrir hádegi og tók taug á milli. Stefnan var tekin suður og um klukkustund síðar mættu Björg og Jón Gunnlaugsson hvor öðrum, og tók Jón Gunnlaugsson við drættinum til Akraness. Björg sneri aftur til heimahafnar á Rifi og var komin þangað upp úr klukkan 15.
Jón Gunnlaugsson var á sjötta tímanum í gær að renna í höfn á Akranesi með fiskibátinn í togi. Áhöfnin fékk þó ekki langa hvíld, því varðskipið Freyja hafði í millitíðinni tekið annan bát í tog rétt vestur af Akranesi. Jón Gunnlaugsson sótti þann bát einnig og dró hann til hafnar, enda betur til þess fallinn vegna minni djúpristu en Freyja.
