Kolefnisbinding þaraskóga á tímum loftslagsbreytinga

Deila:

Hafrannsóknastofnun heldur málstofu miðvikudaginn 7. maí kl. 12:30 undir yfirskriftinni Kolefnisbinding þaraskóga í hlýnandi heimi. Fyrirlesari er Dr. Albert Pessarrodona, ástralskur sjávarlíffræðingur, sem mun fjalla um hlutverk þaraskóga í kolefnishringrás strandsvæða og möguleika þeirra sem „blátt kolefni“, þ.e. að vistkerfi sjávar bindi kolefni. Einnig verður rætt hvernig loftslagsbreytingar geta haft áhrif á þessa bláu kolefnisbindingarlausnir, með sérstakri áherslu á þaraskóga á norðurhveli jarðar.

Málstofan fer fram í höfuðstöðvum Hafrannsóknastofnunar að Fornubúðum 5 og er öllum opin. Einnig verður hægt að fylgjast með málstofunni í gegnum Teams. Tengill á fjarfundinn er aðgengilegur á vef Hafrannsóknastofnunar.

Málstofan verður haldin á ensku.

Deila: