Skýrsla um stjórnsýslu og lagaumgjörð hvalveiða

Starfshópur um stjórnsýslu og lagaumgjörð hvalveiða hefur nú lokið vinnu sinni og afhent skýrslu til atvinnuvegaráðherra. Skýrslan hefur verið birt í samráðsgátt stjórnvalda, þar sem almenningi gefst kostur á að senda inn athugasemdir og ábendingar næstu tvær vikurnar. Innsendar umsagnir verða teknar til greina við frekari vinnu ráðherra með tillögur starfshópsins.
Að loknu samráði mun ráðherra taka ákvörðun um framtíð hvalveiða og lagaumgjörð þeirra á Íslandi.
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra segir markmið skýrslunnar vera að skapa grundvöll að framtíðarstefnumótun á sviði hvalveiða, efla faglegan grundvöll ákvarðanatöku og stuðla að bættri stjórnsýslu til frambúðar. Ljóst sé að nauðsynlegt sé að breyta lögum, og stefnt er að því að frumvarp verði lagt fram á næsta löggjafarþingi.
Starfshópurinn var skipaður 13. febrúar 2024 af Katrínu Jakobsdóttur, þáverandi matvælaráðherra. Formaður starfshópsins var Þorgeir Örlygsson, fyrrverandi hæstaréttardómari, og með honum í hópnum voru Aðalheiður Jóhannsdóttir, Árni Kolbeinsson, Snjólaug Árnadóttir og Trausti Fannar Valsson. Árni Kolbeinsson lét af störfum í starfshópnum 5. október 2024 vegna skipulagsbreytinga í ráðuneytinu.