Tregfiskerí í Sandgerði á fyrsta degi

Strandveiðin hófst í gær og reyndist ágæt veiði víðast hvar um landið. Veiðin í Faxaflóa og við Reykjanes virðist hins vegar hafa verið undir pari. 20 strandveiðibátar lönduðu að meðaltali 364 kílóum af þorski í Sandgerðishöfn í gær.
Hér fyrir neðan má sjá meðalþyngd þorsks í þeim löndunarhöfnum sem búið er að skrá á gagnasíðum Fiskistofu. Á Dalvík var fyrsti dagurinn einnig erfiður.
| Höfn | Þorskur | Landanir |
| Hornafjörður | 821 | 17 |
| Tálknafjörður | 742 | 12 |
| Hólmavík | 738 | 20 |
| Skagaströnd | 723 | 16 |
| Siglufjörður | 686 | 16 |
| Patreksfjörður | 683 | 25 |
| Suðureyri | 639 | 18 |
| Dalvík | 463 | 14 |
| Sandgerði | 364 | 20 |


