Fullfermi hjá línuskipunum

Deila:

Síðustu daga hafa skip Vísis hvert á fætur öðru landað góðum afla í heimahöfninni í Grindavík. Togarinn Jóhanna Gísladóttir GK landaði á sunnudag, línuskipið Páll Jónsson GK á mánudag og línuskipið Sighvatur GK kom í höfn í dag. Öll skipin komu með fullfermi og ríkti mikil ánægja meðal skipstjóranna. Frá þessu segir á vef Síldarvinnslunnar.

Smári Rúnar Hjálmtýsson, skipstjóri á Jóhönnu Gísladóttur GK, lýsti ánægju sinni með aflabrögðin að undanförnu. „Við lönduðum á sunnudaginn með góðan afla af þorski og ýsu. Við höfum verið í Lónsbugtinni þrjá síðustu túrana og veiðarnar gengið vel í góðu veðri. Skipið er nú komið í slipp í Reykjavík í nokkra daga,” sagði Smári.

Jónas Ingi Sigurðsson, skipstjóri á Páli Jónssyni GK, sagði aflann hafa verið afar góðan, eða 120 tonn eftir aðeins fjórar lagnir. „Við byrjuðum í Meðallandsbugtinni þar sem þorskveiðin var mjög góð. Síðan færðum við okkur á Ingólfshöfðann þar sem fengust keila og langa. Þorskur var 54% af farminum, sem er vel sloppið enda reynum við að takmarka þorskveiðarnar,” sagði Jónas Ingi, en skipið hélt til veiða á ný strax eftir löndun.

Óli Björn Björgvinsson, skipstjóri á Sighvati GK, sagði aflann hafa verið um 115 tonn, mest langa og keila. „Við lögðum fyrst í kantinum vestan við Surtsey en síðasta lögnin var í fjörunni austan við Grindavík, þar sem þorskurinn gaf mjög vel. Menn eru mjög sáttir eftir góðan túr og við höldum aftur til veiða í kvöld,” sagði Óli Björn.

Deila: