Heimaey seld til Noregs

Deila:

Ísfélag hf. hefur selt Heimaey VE til norska félagsins Andrea L AS. Skipið mun halda í síðasta sinn úr heimahöfn í Eyjum í kvöld um kl 20:00. Áfangastaðurinn er Maloy en þar verður skipið afhent norskum kaupendum í næstu viku. Frá þessu er greint á Facebook-síðu fyrirtækisins.

Heimaey var smíðuð fyrir Ísfélagið og var afhent félaginu árið 2012. Skipið var smíðað í skipasmíðastöðinni Asmar í Chile. Samningar um smíði hennar var undirritaður árið 2007. Árið 2010 skók risastór jarðskjálfti landið sem seinkaði komu skipsins.

Að sögn Eyþórs Harðarsonar, útgerðastjóra Ísfélagsins hefur skipið reynst vel á allan hátt þau 13 ár sem það hefur verið gert út.
Eyþór segir aðspurður að áhöfn Heimaeyjar muni færast yfir á nýtt skip félagsins, uppsjávarskipið Pathway sem verður afhent í lok maí í Skagen í Danmörku. Stefnt að því að koma nýju Heimaey heim til Eyja fyrir sjómannadag.

 

 

Deila: