Bergur með fullfermi eftir stuttan túr

Deila:

Ísfisktogarinn Bergur VE landaði fullfermi í heimahöfn í Vestmannaeyjum í gærmorgun eftir góðan túr. Frá þessu segir á vef Síldarvinnslunnar.

Jón Valgeirsson skipstjóri lýsti veiðiferðinni sem mjög vel heppnaðri. „Við byrjuðum á að taka tvö hol á Ingólfshöfða þar sem fékkst blandaður afli. Síðan var haldið á Skerbleyðuna út af Hornafirði þar sem veiðin var mjög góð og kvótavæn blanda. Í aflanum var mest ýsa en einnig steinbítur, skarkoli og svolítið af þorski, enda reynum við alltaf að spara þorskinn,” sagði Jón.

Túrinn var stuttur, en Bergur var aðeins tvo sólarhringa að veiðum auk þess sem einn og hálfur sólarhringur fór í stím. Veður var að mestu fínt, þó hafi komið smá vestan kaldi um tíma. „Það er varla hægt að vera annað en sáttur við svona túr,” sagði Jón.

Bergur hélt á ný til veiða í morgun.

Deila: