Hrun í Faxaflóa í fyrstu viku strandveiða

Deila:

Óhætt er að segja að þorskveiðin í Faxaflóa hafi valdið vonbrigðum í fyrstu viku strandveiða. Þegar rýnt er í meðalþorskveiðiafla strandveiðabáta, nú þegar fyrsta vika strandveiði er að baki, sést að veiðin var áberandi verst við Faxaflóann. Hafnarfjörður, Sandgerði og Akranes voru verstu löndunarhafnirnar í fyrstu viku veiðanna.

Alla jafna skila þessar hafnir góðum afla í upphafi vertíðar. Hafa verður í huga að vestlæg átt hefur verið ríkjandi og sjólag slæmt – eins og raunar víðar á vestanverðu landinu.

Á meðfylgjandi töflu sést meðallöndun þorsks eftir löndunarhöfnum. Aðeins þær hafnir sem hafa 20 landanir eða fleiri eru á listanum. Eins og sjá má er byrjunin best á Hornafirði en þar er meðallöndun langt yfir leyfilegu hámarki. Þar hefur 31 löndun af 37 verið yfir 774 kílóum, sem er leyfilegur hámarksafli. Enginn hefur veitt undir 742 kíló af þorski á Hornafirði í vikunni. Þetta er samkvæmt skráningum í gagnasafn Fiskistofu.

Að öðru leyti koma Húsavík, Arnarstapi, Skagaströnd og Grundarfjörður best út.

Óhætt er að segja að hrun hafi orðið í Faxaflóa, samanborið við fyrstu vikuna í fyrra.

Deila: