Endurbyggð Torfunefsbryggja vígð

Endurbyggð Torfunefsbryggja við Pollinn á Akureyri var í dag vígð við hátíðlega athöfn. Togarinn Björg EA 7, lagðist að bryggjunni kl. 10:00 og markaði þar með formlega opnun þessa nýja mannvirkis, sem tengir saman sjávarsögu, útgerð og framtíðarsýn um lifandi miðbæjarsvæði.
Bryggjan var prýdd fánum þegar Björg EA lagðist að, og tóku Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri og Kristján Vilhelmsson, framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja, á móti landfestum. Það var svo Baldvin Þorsteinsson forstjóri Samherja sem leysti landfestar skipsins og vígði þannig bryggjuna formlega.
Í ræðu sinni sagði Ásthildur Sturludóttir að endurbygging Torfunefsbryggju væri stór áfangi í þróun bæjarins:
„Þetta er stór dagur fyrir okkur Akureyringa. Þetta er stór áfangi fyrir okkur að fá þetta svæði sem verður vonandi eins og Aker Brygge í Ósló, iðandi af mannlífi og skemmtilegheitum. Svæðið verður góð viðbót við miðbæinn okkar.“
Ásthildur sagði einnig að það væri viðeigandi að glæsilegt skip á borð við Björgu EA hefði verið fyrsta skipið til að leggja að nýrri bryggjunni og óskaði bæjarbúum til hamingju.
Guðmundur Freyr Guðmundsson, skipstjóri á Björgu EA, sagði það mikinn heiður að fá að taka þátt í þessum tímamótum:
„Akureyri er útgerðarbær og því viðeigandi að akureyskt skip vígi þetta mannvirki. Áhöfnin gerði þetta með stolti og ánægju. Ég óska Akureyringum til hamingju með endurgerða Torfunefsbryggju.“
Guðmundur sagðist jafnframt spenntur fyrir framhaldinu og frekari framkvæmdum á svæðinu.
Töluverður fjöldi bæjarbúa fylgdist með vígslunni í morgunsólinni við Pollinn, en myndir Harðar Geirssonar sýna vel stemninguna og gleðina sem ríkti á svæðinu.
Torfunefsbryggja, sem hefur lengi verið hluti af hafnarsvæðinu á Akureyri, fær nú nýtt hlutverk og líf sem hluti af framtíðarsýn um opið og mannlífsríkt strand- og hafnarsvæði bæjarins.
Myndirnar eru af vef Samherja.

