Endurskoða viðurlög við umframafla

Deila:

Meirihluti atvinnuveganefndar Alþingis leggur til að frumvarp atvinnuvegaráðherra um strandveiðar verði samþykkt, með þeirri breytingu að viðurlög við umframafla verði endurskoðuð. Nefndarálit meirihlutans var afgreitt síðdegis í gær. RÚV greindi frá þessu.

Markmið frumvarpsins er að tryggja 48 daga strandveiðitímabil. Til þess er meðal annars lagt til að sett verði bráðabirgðaákvæði sem kveður á um að Fiskistofa stöðvi ekki strandveiðar á þessu fiskveiðiári. Einnig verði ráðherra heimilt að úthluta auknum afla til strandveiða ef nauðsyn krefur.

Í upphaflegri gerð frumvarpsins var gert ráð fyrir að veiðimenn sem kæmu með meira en fimm prósent umfram leyfilegan hámarksafla til lands yrðu sektaðir, og að þeir yrðu sviptir veiðileyfi ef slíkt brot ætti sér stað þrisvar sinnum. Nefndin telur slíkar refsingar geta verið of íþyngjandi og jafnvel stuðlað að auknu brottkasti. Því er lagt til að við ítrekuð brot verði fjársektir tvöfaldaðar í stað þess að beita sviptingu veiðileyfis.

Deila: