Fjölnir GK með 300 tonn í maí og júní

Deila:

Skipstjórarnir á krókaaflamarksbátnum Fjölni GK, þeir Kristinn Arnberg Kristinsson og Júlíus Magnús Sigurðsson, segja maímánuð hafa verið afar góðan en júní fremur rólegan, eins og oft vill verða. Frá þessu er sagt á heimasíðu Síldarvinnslunnar.

Í maí hófu þeir veiðar á þorski við Grindavík, en færðu sig síðar austur til Hornafjarðar og Breiðdalsvíkur. Þar gekk þorskveiðin vel en ýsan lét á sér standa. Um mánaðamótin var veiðarfærunum beint að löngu suðaustur af Grindavík, þar sem aflabrögð voru mjög góð og báturinn oft fullfermdur eftir stuttan túr.

Löngukvótinn kláraðist um 10. júní og þá hélt Fjölnir til Neskaupstaðar þar sem róið hefur verið síðustu vikur. Þar hefur þó aðeins fengist þorskur og veiðin verið hófleg.

Áætlað er að Fjölnir fari í slipp þann 7. júlí, og verður þá í mánaðarstoppi. Stefnt er að því að halda aftur austur að því loknu.

Heildarafli bátsins í maí var um 200 tonn og um 100 tonn í júní.

Deila: