Sýnasöfnun í ám og vötnum á Norður- og Norðausturlandi

Starfsmenn Hafrannsóknastofnunar fóru nýverið í vettvangsferð um norður- og norðausturland þar sem safnað var sýnum í ám og vötnum. Markmiðið var að kanna líffræðilega gæðaþætti, smádýr og þörunga til að meta vistfræðilegt ástand vatna í samræmi við vatnaáætlun Íslands 2022–2027.
Rannsóknin er liður í stærra verkefni sem unnið er fyrir Umhverfis- og orkustofnun og nær til athugana á eðlisefnafræði, lífríki og fiskum á völdum svæðum. Verkefnið er hluti af evrópska samstarfsverkefninu LIFE Icewater, sem styrkt er af Evrópusambandinu og miðar að því að efla og hraða framkvæmd vatnaáætlunarinnar.
Með slíkum rannsóknum fæst dýpri skilningur á náttúrulegum fjölbreytileika og ástandi íslenskra vatnavistkerfa.

