Danir banna togveiðar á stóru svæði

Deila:

Danska ríkistjórnin og alls sjö þingflokkar standa á bak við nýjan fiskveiðisáttmála sem kveður á um bann gegn togveiðum. Svæðið spannar um fimmtung hafsvæða umhverfis Danmörku. Bannið nær til Lillebælt, Storebælt og suðurhluta Kattegat og tekur gildi árið 2026.

Umhverfissamtök fagna ákvörðuninni og kalla hana sögulega í frétt á vef DR. Stofnunin Tænketanken Hav lýsir löggjöfinni sem „sigri fyrir lífið í hafinu“ og Danmarks Naturfredningsforening segir að hún gefi tækifæri til að byggja upp lífríki hafsbotnsins. Samkvæmt danska líffræðiráðinu er ástand hafsins á þessum svæðum slæmt og botnvörpuveiðar taldar hafa neikvæð áhrif, jafnvel þar sem þær eru lítið stundaðar.

Sjómenn eru hins vegar ekki sammála. Þeir telja að orsök hnignunar í hafinu liggi fremur í mengun og of miklum fjölda sela og skarfa. Formaður Danmarks Fiskeriforening, Svend-Erik Andersen, fagnar þó því að kolefnisgjaldi á útgerðir verði frestað til ársins 2029 og að áður greidd gjöld verði endurgreidd.

Samkomulagið felur einnig í sér takmarkanir á sölu aflaheimilda frá smærri fiskiskipum. Þá verður komið fót á faghópi um söfnun gagna og þekkingar til framtíðarstefnumótunar í sjávarútvegi í Danmörku.

Deila: