Veiðimenn hvattir til að sleppa laxi

Deila:

Landssamband veiðifélaga vekur athygli á óvenju lítilli laxagengd fyrstu vikur sumarsins og hvetur til varfærni næstu daga og vikur þar til þróun liggur fyrir. Í ljósi þessa skorar LV á veiðifélög og veiðimenn að takmarka dráp á laxi eins og kostur er og takmarka eða banna veiðiaðferðir og búnað sem hindrar að hægt sé að sleppa laxi lifandi.

LV bendir á að íslenskir laxastofnar séu undir álagi, ekki síst vegna sjókvíaeldis, og að mikilvægt sé að verja hrygningarstofna til að viðhalda sterkum stofnum.

„Hafa ber í huga að íslenskir laxastofnar eiga almennt undir högg að sækja, þó þeir séu sterkir í samanburði við nágrannaþjóðir okkar. Áskoranir stofnanna eru margvíslegar og í ljósi vaxandi og alvarlegra afleiðinga sjókvíaeldis ættu veiðifélög og veiðimenn ávallt að hafa það að leiðarljósi að ganga vel um stofnana og reyna að viðhalda eins stórum hrygningarstofnum og unnt er. Stórir stofnar veita meira viðnám gegn neikvæðum afleiðingum sjókvíaeldis.”

LV lítur svo á að vaxandi og alvarleg áhrif sjókvíaeldis kalli á að veiðifélög og veiðimenn fylgi þeirri stefnu að ganga vel um stofnan. Landssambandið mun fylgjast eftir ástandinu og endurmeta viðbrögð eftir því sem veiðitímabilinu vindur fram.

Deila: