Sýður upp úr á Alþingi

Óhætt er að segja að soðið hafi upp úr á Alþingi í morgun þegar fregnir bárust af því að þingmaður Sjálfstæðisflokksins og einn af varaforsetum Alþingis, sleit óvænt þingfundi skömmu fyrir miðnætti í gær. Það var gert í trássi við forseta þingsins, Þórunni Sveinbjarnardóttur. Ráðherra menntamála hefur í dag sakað stjórnarandstöðuna um valdarán en Kristrún Frostadóttir flutti ávarp við upphaf þingfundar í dag.
Hún sagði við upphaf ávarpsins: „Það er komin upp ný staða í íslenskum stjórnmálum, sem er fordæmalaus í sögu lýðveldisins Íslands. Minnihlutinn á Alþingi viðurkennir ekki umboð meirihlutans til að fylgja sinni stefnu og stendur í vegi fyrir lýðræðislegri afgreiðslu mála á Alþingi,“ sagði hún.
Hún sagði einnig: „Lýðræðið er dýrmætt en viðkvæmt. Það veltur ekki aðeins á skrifuðum reglum, stjórnarskrá og þingsköpum, heldur einnig óskráðum reglum og virðingu fyrir lýðræðislegum leikreglum. Hvernig við umgöngumst lýðræðið skiptir máli, hvernig við umgöngumst vald, réttindi og skyldur skiptir máli. Og ábyrgð okkar sem sitjum á Alþingi er mikil. Nú er verkefni okkar að sýna að lýðræðið virki, að það geti átt sér stað valdaskipti hér á Íslandi, þegar þjóðin kýs nýtt upphaf í kosningum. Þetta er það sem er í húfi, að lýðræðið virki, fyrir fólkið.“
Stjórnarandstaðan hefur rætt um veiðigjaldafrumvarpið meira en nokkurt mál sem komið hefur til kastsa þingsins. Þegar þetta er skrifað er einn einn þingfundurinn hafinn, þar sem eina málið á dagskrá er veiðigjaldafrumvarpið.
Þung orð hafa verið látin falla á þingi og í fjölmiðlum í dag.
Við blasir að ákvörðun um beitingu 71. greinar þingskaparlaga liggur í loftinu, en hún getur knúið fram atkvæðagreiðslu um þingmál.

